Fimmtudagskvöldið 11. nóvember 2010 kl.19.30 býður 3f félagsmönnum upp á Joomla-klúbbskvöld. Árni í Álfhólsskóla í Kópavogi er svo vinsamlegur að bjóða okkur upp á aðstöðu fyrir klúbbinn. Klúbburinn er sem fyrr mjög óformlegur, boðið er upp á afnot að nettengdum tölvum í tölvuveri skólans. Við skiptumst á hugmyndum og kennum hvert öðru að vefa með Joomla vefsíðukerfinu. Við ætlum að vera með stutt innlegg, kenna ykkur að setja inn á síðurnar myndrænar tilvísanir í myndakerfi eins og Flickr.
Mest um vert er að hafa gaman af og miðla af þekkingu til hvers annars. Góðar veitingar verða í boði 3f.
Vonum að sem flestir komi og heilsi upp á okkur í Álfhólsskóla. Sjá staðsetningu hér á korti (merkt sem Hjallaskóli) |