Upplýsingatækni og umhverfisvernd
, Category: Fréttir,Fyrirtækið Samvil ehf tekur þátt í Grundtvig Evrópuverkefni sem heitir „Menntun verður græn“ (e. Education goes green) og leitar nú að kennurum sem hafa áhuga á því að kenna tilraunaverkefni.
Markmið verkefnisins er að koma á framfæri þekkingu á því hvernig tölvu- og upplýsingatækni getur stuðlað að umhverfisvernd og grænni hugsun.
Í verkefninu er útbúið tilraunanámsefni (e. Module). Námsefninu er skipt í fjóra kafla: tölvu- og samskiptatækni, hugbúnaður, vélbúnaður og rafræn stjórnsýslu. Tilraunanámsefnið verður kennt og að því loknu verður námsefnið metið af kennurum og nemendum.
Hugmyndin er sú, að hægt sé að nota námsefnið sem sjálftætt kennsluefni eða samtvinnað námskeiði í tölvu- og upplýsingatækni.
Gundtvig verkefnið nær yfir tveggja ára tímabil, frá 2011 til 2013 og taka fimm Evrópulönd þátt í verkefninu.
Fyrirtækið leitar eftir fjórum kennurum sem kenna tölvu- og upplýsingatækni á öllum skólastigum til að kenna tilraunarnámsefnið í sínum skóla. Tilraunarnámsefninu fylgir glærukynning um efnið á íslensku og ítarefni fylgir með á ensku. Gert er ráð fyrir að það taki 3-4 tíma að kenna námsefnið. Kennslan þarf að fara fram í janúar 2013. Um sjálfboðavinnu er að ræða. Þeir sem hafa áhuga að taka þátt í verkefninu sendið tölvupóst á samvil@simnet.is eða hringið í gsm 898 7824.