YouTube fyrir skóla

“YouTube fyrir skóla” er nýjung sem YouTube kynnti í gær. Þannig veitir YouTube skólum aðgang að ókeypis mennta YouTube vídeóum, en takmarkar aðgang að öðru YouTube efni. Nemendur geta lært af fleiri en 400.000 myndböndum sem tengjast menntun, frá þekktum samtökum eins og Stanford, PBS og TED.   Myndbönd frá samstarfsaðilum YouTube  sem hafa verið skoðuð milljón sinnum, eins og Khan Academy, Steve Spangler, Vísinda og raungreinamyndbönd og fl.  Skólar geta einnig aðlagað YouTube þörfum skólans með því að útbúa eigin YouTuberás. Spennandi hlutir í gangi hjá þeim sem eru kynntir enn frekar í myndbandinu sem hér fer á eftir.

  • Share this post:
  • Facebook
  • Twitter
  • Delicious
  • Digg

1 Comment

  • mér finnst ekki liggja í augum uppi hvað þetta þýðir fyrir íslenska kennara. Í mörgum skólum er lokað á Youtube, veit ekki alveg hvers vegna, óviðeigandi efni eða erlent niðurhal ? Með þessu gætu þá skólar opnað á youtube.com/schools ?
    Sé aftur á móti strax hagræðinguna af http://www.youtube.com/teachers þar sem er búið að flokka niður í spilunarlista eftir fögum og aldurshópum. Verður allavega spennandi að sjá hver þróunin verður.