Málstofa um miðlamennt

Posted by admin, Category: Atburðir, Atburðir 2011, Fréttir,

Miðlamennt (media education) hefur öðlast sess í námskrám margra þjóða og hún er meðal forgangsmála í menntastefnu Evrópusambandsins. Þótt talað hafi verið um miðlamennt sem „náms- og kennslufræði 21. aldarinnar“ glímir fræðafólk enn við áleitnar spurningar sem varða eðli hennar og útfærslu í skólastarfi.

 Rannum (Rannsóknarstofa í upplýsingatækni og miðlun) boðar til málstofu um miðlamennt miðvikudaginn 18. maí. Verður hún haldin í Hamri, húsnæði menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð, kl. 10-12 í stofu H201. Þar mun dr. Leo Pekkala segja frá fræðastarfi sem tengist miðlamennt í Háskólanum í Lapplandi, þar sem hann starfar, og ræða hugmyndir sínar um miðlalæsi og miðlamennt við málstofugesti.

Miðað er við málstofan verði að stórum hluta samræða milli Pekkala, málstofugesta og umræðustjóra sem er Stefán Jökulsson, lektor í miðlun og miðlalæsi við menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Hugtakið miðlamennt vísar til skólastarfs þar sem nemendur nota ýmsa miðla- myndmiðla, hljóðmiðla, prentmiðla og netmiðla – við nám sitt og læra í leiðinni sitthvað um notagildi þeirra og áhrif á menningu og lýðræði. Markmiðið er að nemendur læri að leggja mat á miðlað efni en fái einnig þjálfun í að nota ýmsa miðla við efnisgerð og þekkingarsköpun.

Miðlamennt snertir einnig þá námsfærni sem tengist stafrænni tækni og með henni er stefnt að því að minnka muninn á því sem nemendur læra í skólum og þeirri
kunnáttu og færni sem þeir þarfnast í lífi sínu og starfi.