Nýting upplýsingatækni til samskipta í tungumálanámi og -kennslu: möguleikar og vandamál
, Category: Atburðir 2011, Framhaldsskóli, Fréttir,Ida M. Semey, spænskukennari í MH og meistaranemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands flytur erindi um reynslu sína af notkun upplýsingatækni til samskipta í spænskukennslu og hvernig má nýta fjölbreytta samskiptamöguleika í tungumálanámi. Fjallað verður um kennslufræði, skipulag og tækni og tekin nokkur dæmi þegar notuð eru samskiptaverkfæri s.s. Skype, Facebook og GoogleDocs. Einnig verða skoðuð vandamál sem geta komið upp og hvernig hægt er að bregðast við þeim.
Erindið verður haldið í aðalbyggingu Menntavísindasviðs að Stakkahlíð og hefst kl. 12:00.
Erindið er á vegum RANNUM (Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun) í samstarfi við 3f - félags um upplýsingatækni í menntun.