Síðdegis í dag var opnuð formlega ný heimasíða 3f. Við eigum eiginlega bara eftir að færa hana yfir á vefslóðina okkar og þá er hún tekin við af þeirri gömlu. Þessi nýja heimasíða er gerð með vefumsjónarkerfinu WordPress, en sú gamla var gerð með Joomla.
Á skemmtikvöldinu fór Fjalar yfir 100 bestu stafrænu verkfærin í námi og kennslu. Þetta er listi sem Jane Hart, stofnandi Centre for learning and Performance Technologies tekur árlega saman. Hér má sjá kynninguna sem unnin var í Prezi.
Við áttum saman notalegt síðdegi og margt áhugavert til umræðu.