Joomla vefumsjónarkerfið - kjörið fyrir skóla og fræðslustofnanir. Höfundur S. Fjalar Jónsson.

joomla.jpgJoomla er öflug hugbúnaðarlausn fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem áhuga hafa á því að koma sér upp vef og viðhalda honum á sem einfaldastan hátt. Joomla er gefið út samkvæmt leyfisskilmálum GNU/GPL og er því öllum frjálst að sækja hugbúnaðinn, aðlaga, dreifa og nýta án endurgjalds. Skólastjórnendur, kerfisstjórar og aðrir sem koma að upplýsingatæknimálum skóla á öllum skólastigum ættu að kynna sér fjölbreytta möguleika Joomla þegar fyrir dyrum stendur að endurnýja eða endurbæta vef skólans.

Joomla er opinn hugbúnaður, mjög vinsæll og í mikilli notkun víðsvegar um heiminn. Hérlendis má finna ótilgreindan fjölda vefa stórra og smárra sem nýta Joomla vefumsjónarkerfið með góðum árangri. Hér að neðan má sjá nokkra þeirra.

Joomla á rætur sínar að rekja til sambærilegs vefumsjónarkerfis sem heiti Mambo, en fyrir nokkru síðan urðu deilur milli forritara og rétthafa Mambo vörumerkisins til þess að hinir fyrrgreindu ákváðu að halda þróun kerfisins áfram á eigin vegum. Joomla er því skilgetið afsprengi Mambo og í dag er meira líkt með kerfunum en ólíkt. Væntanlega munu þau þó þróast hvort í sína áttina með tíð og tíma.

Joomla er hannað með það í huga að vera einfalt í uppsetningu, jafnvel í höndum notenda sem búa yfir lítilli sem engari reynslu af forritun eða umsýslu stýrikerfa. Flestir eiga í litlum vandræðum með að sækja Joomla og setja upp á eigin vefþjón eða vefþjónum sem þeir hafa aðgang að. Eina sem þarf til að setja upp kerfið er ftp aðgangur að vefsvæði með php stuðningi og aðgangur að mysql gagnagrunni. Og þeir sem eiga í vandræðum með uppsetninguna geta hæglega leitað sér aðstoðar hjá yfir 26.000 skráðum notendum sem margir hverjir halda til á umræðuvefjum joomla.org, opinbers vefs Joomla.

Að uppsetningu lokinni er kerfið tilbúið til notkunnar og einfalt að bæta við nýjum vefsíðum, fréttum, texta og myndum. Notendur hafa fullkomið vald yfir öllum efnisþáttum vefsins og geta sniðið útlit hans og virkni að eigin þörfum. Kjósi fólk að sækja sér sérhannað sniðmát eru margar leiðir færar. Öll umsýsla í joomla fer fram í gegnum vefskoðara.

Joomla er afar einfalt í notkun fyrir hinn almenna notanda en býður um leið upp á mjög öfluga kosti fyrir þá sem vilja meira og kjósa að aðlaga kerfið að sértækum þörfum eða aðstæðum. Joomla grundvallast á sjálfstæðum einingum sem einfalt er að bæta við staðlaða uppsetningu og auka þannig möguleika kerfisins til muna. Hundruð slíkra viðbóta er hægt að sækja án endurgjalds á vefinn og má hér að neðan sjá örlítið sýnishorn af því sem í boði er.

  • Flokkuð vefsöfn
  • Skjalasöfn
  • Myndasöfn
  • Vefverslun
  • Umræðuvefi
  • Dagatöl og viðburðaskráningu
  • Blogg
  • Netbundin fréttabréf og póstlista
  • Gagnasöfnun og verkfæri til skýrslugerða
  • Auglýsingaborða og verkfæri til birtingu auglýsinga
  • og margt, margt fleira

Allar frekari upplýsingar um Joomla vefumsjónarkerfið eru aðgengilegar á vefnum www.joomla.org og þar er einnig hægt að sækja nýjustu útgáfu kerfisins hverju sinni auk fjölda viðbótareininga.