Aðalfundur 3f var haldinn í Verzlunarskólanum 5.júní s.l. Á fundinum gengu úr stjórn Salvör Gissurardóttir og Sólveig Jakobsdóttir. Við þökkum þeim kærlega fyrir fórnfús störf fyrir félagið. Í þeirra stað koma í stjórn Björn Sigurðsson og Dagný Elfa Birnisdóttir. Björn starfar hjá Menntagátt og Dagný í Lundarskóla á Akureyri.
Að afloknum venjubundnum aðalfundarstörfum kynnti Jóhanna Geirsdóttir fyrir fundarmönnum nýja Office 2007. Fram kom áhugi á að 3f stæði fyrir námskeiði í notkun forritsins og hefur stjórn hug á að koma því á í haust.
Teknar voru nokkrar myndir á fundinum og hægt að skoða þær hér.