Aðalfundur 3f var haldinn í Iðnskólanum í Reykjavík, Skólavörðuholti, fimmtudaginn 22. maí 2008 kl.15–17.
Dagskrá:
1. Venjubundin aðalfundarstörf
a) skýrsla stjórnar kynnt
b) endurskoðaðir reikningar lagðir fram
c) kjör stjórnar
d) kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
e) önnur mál
2. Hlé og veitingar
3. Kynning á breyttu skólastarfi Iðnskólans í Reykjavík
Menntafélagið ehf. gerði samning við Menntamálaráðuneytið um rekstur nýs framhaldsskóla sem verður til við sameiningu Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskóla Íslands. Með samningi þessum verður til stærsti framhaldsskóli landsins með rúmlega 3.000 nemendur. Skólinn verður einkarekinn og ljóst að með samningnum verður hlutverk atvinnulífsins við að móta iðn- og starfsnám til framtíðar stærra en áður.
Fundargerð
Aðalfundur 3f félags um upplýsingatækni og menntun, fimmtudaginn 22. maí 2008. Fundurinn haldinn í stofu 415 í Tækniskólanum, skóla atvinnulífsins (áður Iðnskólanum í Reykjavík).
Fundurinn hófst kl. 15.
Sólveig Friðriksdóttir begin_of_the_skype_highlighting end_of_the_skype_highlighting formaður 3f setti fundinn og stakk upp á ritara og fundarstjóra sem voru samþykktir. Sólveig flutti síðan skýrslu formanns. Hún fór þar m.a. yfir þau verkefni sem félagið hefur unnið að undanfarið ár. Sjá skýrsluna í heild sinni hér að neðan.
Í framhaldi af skýrslu formanns var m.a. rætt um hvernig hægt væri að kynna félagið fyrir kennurum og fjölga félagsmönnum en þeir eru nú um 140 talsins. Þetta er mál sem ný stjórn mun skoða.
Fjóla Þorvaldsdóttir flutti skýrslu gjaldkera. Reikningar höfðu verið samþykktir af skoðunarmönn félagsins. Fjóla bar upp þá tillögu að ekki yrði rukkuð félagsgjöld frekar en gert hefur verið undanfarin ár. Það var samþykkt.
Fundarstjóri bar upp þá tillögu að greiðslur til stjórnarmanna yrðu hækkaðar, um 10 þúsund til hvers stjórnarmanns þannig að heildargreiðsla, fyrir alla í stjórn verður 150 þúsund (í stað 100 þús.).
Dagný Birnisdóttir og Þorbjörg Garðarsdóttir begin_of_the_skype_highlighting end_of_the_skype_highlighting sögðu sig úr stjórninni. Elín Jóna Traustadóttir kennari og ráðunautur í upplýsingatækni og Jóhann Geirsdóttir kennari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti gáfu kost á sér. Þær voru kosnar, stjórnina skipa því:
Sólveig Friðriksdóttir begin_of_the_skype_highlighting end_of_the_skype_highlighting
Fjóla Þorvaldsdóttir
Björn Sigurðsson
Elín Jóna Traustadóttir
Jóhanna Geirsdóttir
Kristján Kristjánsson og Þorbjörg Garðarsdóttir begin_of_the_skype_highlighting end_of_the_skype_highlighting voru kosin skoðendur reikninga.
Bjargey Gígja Gísladóttir skólastjóri nýs Upplýsingatækniskóla kynnti skólann. Hann heyrir undir nýjan Tækniskóla sem varð til við sameiningu Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskólans. Umræður voru í framhaldi af kynningunni. M.a. var rætt um samvinnu 3f og skólans á sviði endurmenntunar kennara í upplýsingatækni.
Fundarstjóri: Þorbjörg Garðarsdóttir begin_of_the_skype_highlighting end_of_the_skype_highlighting
Fundarritari: Björn Sigurðsson
Fundi slitið kl. 16:45
Skýrsla formanns
Ágætu fundarmenn. Gaman að sjá ykkur.
Ég ætla í stuttu máli að rekja helstu verkefni félagsins á síðastliðnu ári.
Eins og þið vitið þá er fagfélagið 3F vettvangur þeirra sem starfa að upplýsingatækni í menntun og innan þess eru kennarar á öllum skólastigum, frá leikskóla og upp í háskóla.
Síðasti aðalfundur og ný stjórn
Á síðasta aðalfundi sem var haldinn 5. júní 2007 fóru fram kosningar til nýrrar stjórnar. Sólveig Friðriks var áfram formaður, Fjóla áfram gjaldkeri, , Þorbjörg meðstjórnandi og þau Dagný og Björn sem meðstjórnendur. Þau Elín Jóhannsdóttir, og Kristján Kristjánsson voru kosin endurskoðendur félagsins.
Margir fundir og margt rætt
Eins og áður þá hafa margvísleg verkefni verið á döfinni í félaginu þessu starfsári og höfum við verið mjög dugleg við að halda fundi. Við reyndum að hafa fundi u.þ.b. einu sinni í mánuði og svo var einnig nýttur póstur og Netið til frekari samskipta þar sem rætt var ýmislegt sem tengist framgangi UT í menntun eins og nafn félagsins gefur til kynna.
Fundir:
18. júní 2007
Stjórnin skiptir með sér verkum og ræðir um skipulag ráðstefnu 3f– 2. nóvember 2007, sumarnámskeiðið Wiki í námi og kennslu og námskeið í Office 2007 í september.
12. júlí 2007
Fundur í Versló og áfram rætt um næstu viðburði.
• Ráðstefnan
• Námskeið í Office 2007 í september
• Vélritunarkeppni í 8. bekk
13.–14. ágúst 2008
Námskeiðið Wiki í námi og kennslu (Salvör)
4. september 2007
Fundur haldinn hjá HugurAx og húsakynni og aðstaða skoðuð.
• Ráðstefnan
• Office 2007
• Póstlistinn
14. og 21. september 2007
Námskeið í Office 2007 í Versló (Jóhanna Geirs og Sólveig)
2. nóvember 2007
Ráðstefnan Vörður vísa veginn haldin í Versló
• Ráðherra menntamála opna
• SAFT kynning
• fyrirlestrar og málstofur
23. nóvember 2007
Matarfundur hjá Fjólu
• Uppgjör ráðstefnunnar
• styrkumsóknir
• Kynnisferð á Keilissvæðið
24. nóvember 2007
Árlegur fundur samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara, formanna fagfélaga, skólamálanefndar Félags framhaldsskólakennara og fulltrúa Félags stjórnenda í framhaldsskólum.
9–11. janúar 2008
Bett ráðstefnan
29. janúar 2008
Heimsókn á Keilissvæðið – Hjálmar sýnir
26. febrúar 2008
Fundur í Perlunni
• Skólavefurinn – heimsókn
• Fræðslufundur á Akureyri
• Námsgagnastofnun – málþing vegna námsefnisgerðar
6. mars 2008
Kynning á Skólavefnum kl. 16:30
27. mars 2008
Málþing um námsefnisgerð á vegum Námsgagnastofnunar, Þjóðmenningarhúsi.
4. apríl 2008
„Er þetta ekki allt að koma“, fræðslufundur á Akureyri í samvinnu við HA.
10. apríl 2008
Umsóknir frá menntamálaráðuneytinu yfirfarnar.
22. apríl 2007
Málþing á vegum samstarfsnefndar EHÍ á Hótel Sögu: Áherslur í endurmenntun
7. maí 2008
Dagur upplýsingatækninnar – ráðstefna: stefna forsætisráðuneytis í UT
18. maí 2008
Fundur á Suðurnesjum hjá Þorbjörgu – grill og skoðunarferð og undirbúinn aðalfundurinn þann 22. maí.
22. maí
Fundur í skólamálanefnd KÍ. S. Fjalar tilnefndur þar.
Wiki í námi og kennslu
Námskeiðið Wiki í námi og kennslu var haldið í Versló daga 13.–14. ágúst í samvinnu við EHÍ. Þátttakendur voru 22 og kennari var Salvör Gissurardóttir. Allir mjög ánægðir.
Námskeið í Office 2007
14. og 21. september var haldið námskeið í Office 2007 í Versló á vegum 3f. Jóhanna Geirsdóttir og Sólveig Friðriksdóttir begin_of_the_skype_highlighting end_of_the_skype_highlighting kenndu á Excel 2007 og Word 2007. Þátttaka var mjög góð.
Vörður vísa veginn – ráðstefna 3f um UT
Ráðstefnan Vörður vísa veginn var haldin í Versló þann 2. nóvember. Ráðstefnan var sett af Þorgerði Katrínu menntamálaráðherra, síðan var SAFT kynning og þar á eftir fjöldi fyrirlestra og málstofur um áhugaverð efni. Ráðstefnan var mjög vel sótt og stjórnarmenn afar ánægðir með hvernig til tókst.
Umsóknir um námskeið
Ávallt hefur verið lögð töluverð vinna í umsóknir um sumarnámskeið á vegum félagsins hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Félagið sendi inn tvær umsóknir, námskeið í vefgerðarforritinu Joomla og Excel fyrir framhaldsskólakennara en hvorugt fékkst.
Einnig var sótt um styrk til námsferðar til Írlands til að heimsækja þar netþjónabú og kynnast hvernig Írar hafa komið að þeim málum hjá sér en það gekk heldur ekki eftir.
Formaður sendi bréf vegna þessa til samstarfsnefndar EHÍ og mótmælti þessu en og svar barst nýlega þar sem færð voru rök fyrir höfnum. Almenn tölvunámskeið o.fl.
Kynnisferð á Keilissvæðið
Þann 29. janúar var farin kynnisfer á Keilissvæðið undir leiðsögn Þorbjargar og Hjálmars. Boðið var upp á rútuferð fyrir þátttakendur. Þetta var flott ferð en hefðu mátt vera fleiri.
Kynning á Skólavefnum
Þann 6. mars var boðið upp á kynningu á Skólavefnum. Jökull og ?? tóku ámóti þátttakendum og kynntu þeim Skólavefinn, nýtt efni og hvað er á döfinni hjá þeim. Mjög skemmtilegt og fróðlegt.
Umsóknir metnar fyrir menntamálaráðuneytið
Eins og undanfarin ár þá fer félagið yfir umsóknir um styrki til námsefnisgerðar sem sendar eru í þróunarsjóð framhaldsskóla og er á vegum menntamálaráðuneytis en það er eitt af verkefnum fagfélagsins gagnvart ráðuneytinu.
Málþing um námsefnisgerð á vegum Námsgagnastofnunar
Þann 27. mars var haldið málþing um námsefnisgerð á vegum Námsgagnastofnunar. Af óviðráðanlegum ástæðum gat enginn úr stjórninni mætt en beðið var um niðurstöður en ekkert hefur spurst til þeirra.
Er þetta ekki allt að koma – Upplýsingatækni í skólastarfi (3f og HA)
Þann 4. aprí sl. héldum við fræðslufund á Akureyri í samstarfi við HA um upplýsingatækni í skólastarfi. Þær Dagný í stjórn 3f, og Helga Thorlacius og Eygló hjá HA sáu að mestu um skipulagningu fundarins en hann var haldinn í húsakynnum HA. Reynt var að höfða til allra skólastiga. Kennarar á Norðurlandi sóttu fundinn vel og fjölmörg áhugaverð erindi voru flutt. Stjórnin sótti fundinn og voru allir sérstaklega ánægðir með hvernig til tókst.
Málþing hjá Endurmenntun
22. apríl var haldið málþing hjá samstarfsnefnd EHÍ fyrir formenn og stjórnarmenn fagfélaga, skólamálnefnd FF og stjórn FS um stöðu endurmenntunar framhaldsskólakennara. Við Fjóla sóttum báðar þingið.
Fyrirlestrar voru um það sem er efst á baugi í endurmenntun (Hafdís Ingvarsdóttir) og hugleiðingar um símenntun (Elna Katrín Jónsdóttir). Á eftir var þátttakendum skipt í hópa og unnið þar að hugmyndum um áherslur í endurmenntun.
Félag vélritunar- og ritvinnslukennara (FVR)
Sameining 3F og FVR gengin í gegn og fjármunir frá þeim verða að hluta nýttir í að styrkja kennslu í fingrasetningu/vélritun t.d. með vélritunarkeppni í 8. bekk í grunnskólum landsins.
Styrkir til ýmissa verkefna
Félagið hefur verið jákvætt fyrir því að styrkja ýmislegt sem til eflingar upplýsingatækni í menntakerfinu og hafa bæði verið veittir styrkir í ýmis verkefni og einnig til einstaklinga. Teljum við þeim fjármunum hafa verið vel varið.
Vefsíða félagsins, félagatal og póstlisti
Vefsíðan er í stöðugri þróun og alltaf nýjar fréttir og tilkynningar. Gert var átak í að laga félagatalið og hefur nýjum félögum fjölgað mjög, eru nú að nálgast 104 og alltaf að bætast fleiri við. Nú eru sendar tilkynningar og frétti reglulega á póstlistann.
Verkefni sem eru framundan:
1. Ráðstefna um fjarkennslu á vegum félagsins og í samstarfi við HR 17. október nk.
Terry Adams fjarnámssérfræðingur (Sólveig Jakobs)
Sækja um fjárframlög til ráðuneytis og styrk til Endurmenntunar
Eins og alltaf þá fer mikill tími í að skipuleggja og koma svona ráðstefnu á laggirnar en það er von okkar að það muni takast vel.
2. Excel fyrir framhaldsskólakennara og Office 2007 – haustið 2008
3. Vélritunarkeppni í grunnskólum landsins í mars 2009
4. Enn fleiri félaga inn og enn meiri virkni
Í lokin er það von mín að félagið verði áfram öflugt og virkt til gagns fyrir sem flesta sem starfa að UT málum í skólakerfinu.
Takk fyrir.
Sólveig Friðriksdóttir formaður 3f