Aðalfundur 3f haldinn í Borgarholtsskóla 27. maí 2009 kl. 15:00
Sólveig Friðriksdóttir begin_of_the_skype_highlighting end_of_the_skype_highlighting formaður setti fundinn.
Jóhanna Geirsdóttir kosin fundarstjóri og Björn Sigurðsson ritari fundarins.
Hefðbundin aðalfundarstörf
Sólveig flutti skýrslu formanns. Mörg mál hafa komið á borð stjórnar á undanförnum 12 mánuðum. Fundir hafa verið haldnir a.m.k. einu sinni í mánuði. 3f er þátttakandi í ýmsum verkefnum, s.s. Rannum (Rannsóknarstofa í upplýsingatækni menntunar). Stjórnarmeðlimir hafa komið að ýmsum viðburðum og félagið tekið þátt í margs konar fundum. Félagið hefur staðið fyrir nokkrum námskeiðum, m.a. í Joomla vefumsjónarkerfinu og einnig í MS Office2007, farnar hafa verið kynnisferðir og haldnir félagsfundir. Ýmsilegt framundan hjá félaginu. Skýrsla formanns er birt í heild sinni á vef 3f.
Umræður spunnust um ýmislegt af því sem fram kom í skýrslunni. Skýrslan samþykkt.
Fjóla Þorvaldsdóttir gjaldkeri kynnti reikninga félagsins. Fjárhagsleg staða félagsins er góð þrátt fyrir að margt hafi verið gert á árinu. Gjaldkeri lagði til að félagsgjaldið verði óbreytt (kr. 0), það var samþykkt. Reikningar félagsins voru samþykktir.
Fjóla, Elín Jóna, Sólveig og Jóhanna gáfu kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu, voru þær endurkjörnar. Björn gaf ekki kost á sér. Fjalar gaf kost á sér í stjórnina og var hann kosinn. Birni var þakkað fyrir stjórnarsetu síðustu tvö ár.
Kynning á Borgarholtsskóla
Ólafur Sigurðsson skólameistari kynnti Borgarholtsskóla, hann sýndi m.a. kynningarmynd um skólann. Ari Halldórsson kynnti nám á list- og fjölmiðlabraut, einnig ræddi hann um dreifnám sem skólinn býður upp á. Í kjölfar kynninga Ara og Ólafs spunnust umræður, s.s. um opinn hugbúnað, námsstjórnunarkerfi, áfanga í upplýsingatækni o.fl.
Fundi slitið kl. 16:30