3f.is » Leiðbeiningar

Jóla Joomla
Ég mæli yfirleitt ekki með óþarfa skrauti á vefi, en þegar um er að ræða hátíðlega viðburði eins og jól eða áramót er í góðu lagi að gera sér smá dagamun. Hér á eftir kynni ég nokkrar einfaldar Joomla einingar sem allar eiga það sameiginlegt að koma að góðum notum yfir hátíðarnar.

Yooholidays

Með þessari viðbót getur þú látið snjóa á vefnum þínum, kallað fram flugeldasýningu (með hljóði) eða sleppt lausum leðurblökum. Snjórinn er einna bestur, látlaus en smekklegur og mun flottari en á meðfylgjandi mynd. Flugeldasýningin er frekar tilþrifalítil og hvað leðurblökurnar varðar þá er kannski lítil þörf fyrir þær á íslenskum vefjum.

Uppsetning er einföld, enda um að ræða venjulega Joomla einingu. Mundu bara að fela titilinn á einingunni því það er óþarfi að birta hann á vefnum. Stillikostir eru nokkrir og munar þá helst um að hægt er að tímasetja brellurnar, sem er stórsniðugur eiginleiki. Smelltu hér til að sækja YOOholidays fyrir Joomla 1.5.

Jsnowfall

Einkar jólaleg snjókoma, látlaus og smekkleg (sést ekki nógu vel á meðfylgjandi mynd sem er að stórum hluta hvít). Pirrar mig örlítið að snjókornin skuli breyta um stefnu þegar ég hreyfi músina. Einnig fátæklegir stillimöguleikar, þ.e. annað hvort snjóar eða ekki.

Uppsetning er einföld. Einingin (e. module) er sótt og virkjuð. Bara mikilvægt að muna að fela titilinn, sem þjónar náttúrulega engum tilgangi. Smelltu hér til að sækja JSnowfall fyrir Joomla 1.5.

SnowXmas

SnowXmas er ekki eiginleg eining (e. module) heldur íbót (e. plugin). Eftir að íbótin hefur verið uppsett er hún virkjuð með því að velja Extensions>Plugin Manager og virkja þar System - Snowxmas.

Stillingarmöguleikar eru frekar fátæklegir. Hægt er að vilja fjölda snjókorna og hversu lengi það tekur þau að hverfa. Smelltu hér til að sækja SnowXmas fyrir Joomla 1.5.

Uppsetning á XAMPP
Xampp er hugbúnaðarvöndull sem inniheldur safn af opnum hugbúnaði og má þar helst telja Apache vefþjóninn, MySQL gagnagrunninn ásamt PHP og Perl forritunarmálunum. Xampp er ákaflega einfalt í uppsetningu og notkun og er hreinlega kjörið til setja upp þróunarumhverfi t.a.m. fyrir Moodle eða Joomla lausnirnar.

Xampp er til í fjórum útgáfum, þ.e. fyrir Linux, Windows, Mac OS X og Solaris stýrikerfin. Xampp má að sjálfsögðu sækja og nota endurgjaldslaust.

Xampp safnið sótt og sett upp á Windows

Fyrsta skrefið er að sækja Xampp safnið á www.apachefriends.org vefinn. Smelltu á XAMPP krækjuna til að opna síðuna sem inniheldur útgáfurnar fjórar.

Hér er ætlunin að sækja og setja upp Windows útgáfuna og því er smell á XAMPP for Windows krækjuna.

Hér er smellt á XAMPP 1.6.8 krækjuna sem leiðir okkur að uppsetningarskrám fyrir þá útgáfu, sem er sú nýjasta eins og fram kemur á vefnum. Eins og gefur að skilja breytir þessi krækja um nafn í hvert skipti sem ný útgáfa kemur út.

Þar sem ætlunin er að fara einföldustu leiðina í uppsetningu er smellt á Installer krækjuna. Hún vísar á pakka sem hefur að geyma uppsetningarforrit. Pakkinn er vistaður á Sourceforge vefnum sem opnast um leið og smellt er á krækjuna.

Sjámyndin hér fyrir neðan getur verið nokkuð mismunandi eftir vefskoðara. Hér er XAMPP pakkinn sóttur með Firefox 3.x sem birtir glugga þar sem smellt er á Save File hnappinn til að vista skránna.

Þegar pakkinn hefur verið sóttur er næsta skref að setja hann upp. Það er gert með því að opna uppsetningarskránna xampp-win32-1.6.8.installer.exe.

Þegar spurt er um valkosti við uppsetningu (XAMPP Options) mæli ég með því að hakað sé við fjóra fyrstu valkostina, þ.e. að mynda flýtivísi á skjáborði og Start valseðli og setja Apache vefþjóninn og MySQL gagnagrunninn sem þjónustur í Windows. Sú leið þýðir að það er hægt að stoppa eða ræsa þennan hugbúnað á einfaldan hátt innan Windows stýrikerfisins. Filezilla hefur með skráarflutning að gera og í raun óþarfi þegar verið er að setja hugbúnað upp staðvært (e. localt) því einfaldast er að draga skrár á milli mappa til að afrita þær eða færa frá einum stað yfir á annan. Að sjálfsögðu er smellt á Install hnappinn til að halda uppsetningunni áfram.

Þegar afritun skráa er lokið birtir uppsetningarforritið skilaboð þess eðlis að uppsetningu sé lokið og reynir að ræsa fyrrgreindar þjónustur, þ.e. Apache og MySQL. Við þá aðgerð er vel hugsanlegt að eldveggir láti til sín taka og verður að heimila aðgang í gegnum þá sem oftast er gert með einum músasmelli. Að því loknu opnast XAMPP stjórnborðið og hugbúnaðurinn er tilbúinn til notkunar. Athugið að smella á Start hnappana fyrir aftan viðkomandi þjónustur t.d. Apache vefþjóninn ef ekki hefur tekist að ræsa þær við uppsetningu.

Hægt er að sannreyna uppsetninguna í vefskoðara með því að slá inn vefslóðina http://localhost. Á þá eftirfarandi skjámynd að birtast. Birtist hún ekki er eitthvað athugavert við uppsetninguna.

Loks er smellt á English krækjuna (í mínu tilfelli allavega) til að kalla fram vefsíðu þar sem hægt er skoða ýmsan hugbúnað sem fylgir uppsetningunni og sýsla með MySQL gagnagrunninn með phpMyAdmin verkfærinu.

Nú getur tölvan þjónað hlutverki vefþjóns og einnig er til staðar öflugur gagnagrunnur og forritunarmál. Á þennan grunn má byggja ýmsar lausnir s.s. margvíslegan opinn hugbúnað. Í næsta pistli verður sýnt skref fyrir skref hvernig setja má upp Joomla vefumsjónarkerfið með aðstoð XAMPP.

Joomla – Flickr
Hér eru leiðbeiningar um samþætingu Joomla og Flickr.

Sækja leiðbeiningar á pdf sniði.

Joomla 1.5 sett upp á XAMPP
XAMPP hugbúnaðarvöndullinn er kjörinn þegar ætlunin er að setja upp þróunar- eða vinnuumhverfi á tölvu. Ég geri það gjarnan þegar ég hanna vef að vinna hann staðvært áður en ég færi á Netið. Einnig nota ég XAMPP iðulega til að setja upp hvers kyns netlægan hugbúnað sem ég hef áhuga á að kynna mér betur.

Fjöldi veflausna er hannaður fyrir hugbúnaðinn sem XAMMP hefur að geyma og flestar þeirra má setja upp á einfaldan hátt. Hér verður sýnt hvernig má setja upp Joomla vefumsjónarkerfið á Windows vél þar sem XAMPP er til staðar.

Fyrst er nýjasta útgáfa Joomla hugbúnaðarins sótt á joomla.org vefinn.

Hér er ætlunin að sækja fulla útgáfu en ekki uppfærslu og því er smellt á ZIP krækjuna fyrir aftan útgáfuheitið, sem þegar þetta er skrifað er 1.5.7.

Næst er að afþjappa zip skrána og vista innihaldið í möppu sem er aðgengileg Apache vefþjóninum. Ég mæli með Winrar forritinu til að þjappa og afþjappa skrár. Upplýsingar um þjöppunarforrit má finna hér. Windows XP og Vista notendur þurfa ekki að sækja sérstakan hugbúnað til að afþjappa .zip skrár en Winrar er engu að síður mun handhægari kostur en það sem er innbyggt í stýrikerfin.

Við uppsetningu býr XAMPP til htdocs möppuna undir sjálfri xampp möppunni (C:xampp/htdocs). Möppur og skrár sem vistaðar eru í htdocs möppuna eru aðgengilegar Apache vefþjóninum og því hægt að kalla fram á vefskoðara. Þegar Joomla er uppsett er einfaldast að afþjappa zip skránna sem sótt var á joomla.org í heilu lagi yfir í htdocs möppuna og gefa henni síðan viðeigandi heiti, t.d. joomla.

Þegar afþjöppun er lokið og búið að gefa möppunni sem geymir Joomla í htdocs möppunni nýtt heiti er opnaður vefskoðari og valin slóðin http://localhost/joomla. Gangi allt að óskum á vefskoðarinn að opna fyrstu síðuna í uppsetningarferli Joomla þar sem ákvarðað er hvaða tungumál skuli nota við uppsetninguna. Þar sem íslenska er ekki valkostur notast ég við sjálfgefið gildi og smelli því næst á [Next] hnappinn efst í hægra horni.

Næst athugar Joomla uppsetningarforritið hvort umhverfi það sem ætlunin er að setja forritið upp á sé ekki viðunandi. Til að mynda er athugað hvort stuðningur við php forritunarmálið og MySQL gagnagrunninn sé til staðar og nægjanlegur og hvort ýmsar kerfisstillingar henti ekki örugglega uppsetningunni. Það er mikilvægt að staldra augnablik við þessa skjámynd og staðfesta að allt sé eins og það á að vera. Sjálfgefin (e. default) uppsetning á XAMPP umhverfinu ætti að tryggja snurðulausa uppsetningu á Joomla.

Nú er smellt á Next hnappinn og birtist þá texti GNU General Public License, en Joomla er gefið út samkvæmt skilmálum þess höfundarleyfis. Áður en haldið er áfram með uppsetninguna verður að samþykkja skilmála leyfisins með því að smella á [Next] hnappinn.

Þá er komið að því að gefa upplýsingar um gagnagrunninn sem viðkomandi Joomla uppsetning á að nýta. Hér verður að skrá fimm atriði, en auk þess er hægt að skrá ítarstillingar sem ekki verður fengist við hér og nú. Stillingarnar fimm eru eftirfarandi:

Database Type / Tegund gagnagrunns

Hér er valið mysql

Host Name / vefþjónn

Hér er skráð localhost

Username / notandanafn

Hér er skráð notandanafn notandans sem hefur aðgang að þeim gagnagrunni í MySQL sem Joomla nýtir, en þess má geta að MySQL getur innihaldið fjölmarga gagnagrunna. Einfaldast er að skrá root í þennan reit og veita þannig Joomla kerfisaðgang að MySQL grunninum. Það er einfaldast vegna þess að sá notandi er sjálfgefinn og því óþarfi að stofna nýjan notanda sérstaklega fyrir þetta hlutverk. Ég vil samt aðvara fólk stranglega við því að nota þessa aðferð við uppsetningar á vef á útværum (live) vefþjón þar sem hún leggur öryggi vefsins alls í hættu.

Password / lykilorð

Sjálfgefin uppsetning á XAMPP inniheldur ekkert lykilorð á root notanda MySQL grunnsins. Þessi reitur er því skilinn auður. Þetta væri að sjálfsögðu óhugsandi á “live” vef.

Database name / nafn gagnagrunns

Hér er skráð nafn gagnagrunnsins, t.d. joomla. Athugið að nota ekki séríslenska stafi eða orðabil.

Þegar upplýsingar um gagnagrunn hafa verið skráðar er smellt á [Next] hnappinn til að halda áfram.

Gangi allt að óskum mun Joomla uppsetningarforritið stofna gagnagrunn í MySQL og birta næsta skjá þar sem skráðar eru upplýsingar vegna skráarfærslna með FTP, en þær eru valkvæmar.

Þar sem takmörkuð þörf er á FTP skráarfærslum þegar Joomla er sett upp á staðværan vefþjón verður ekki fengist við þær stillingar hér og nú. Smellt er á [NEXT] til að halda áfram og skrá inn frekari upplýsingar um vefinn og gögnin sem hann kemur til með að geyma. Stillingarnar eru eftirfarandi:

Site nafn / Nafn vefsins

Hér er skráð nafn vefsins og birtist það oftast á áberandi stað í sniðmátinu

Your E-mail / Tölvupóstur kerfisstjóra

Tölvupóstur frá kerfinu er sendur á þetta netfang

Admin Password / Lykilorð

Lykilorð kerfisstjóra. Eins og gefur að skilja er afar mikilvægt að gleyma ekki því sem hér er skráð.

Install Default Sample Data / setja upp sýnishorn af vef

Unnt er að láta uppsetningarforritið skrá sýnishorn af gögnum í gagnagrunninn við uppsetningu með því að smella á þennan hnapp. Kosturinn við þá aðgerð er að notandinn fær gögn að vinna með og vef sem hægt er að prufukeyra. Ég mæli með þessum valkosti.

Load Migration Script valkosturinn hefur með það að gera þegar uppfært er úr Joomla 1.x yfir í 1.5. x útgáfuna af Joomla. Ekki verður fengist við slíka hluti hér og nú.

Uppsetningu er svo lokið með því að fjarlægja möppuna installation sem er undir joomla möppunni í þessu tilfelli eða þeirri möppu undir htdocs sem geymir joomla vefinn.

Eftir að installation mappan hefur verið fjarlægð er smellt á [Site] hnappinn efst í vinstra horni til að opna hinn nýja Joomla vef eða [Admin] hnappinn til að skrá sig inn á kerfishluta vefsins.

Til hamingju með nýja Joomla vefinn þinn.

Valseðlar í Joomla 1.5
Valseðlar (e. menu) þjóna því hlutverki að veita aðgang að einstaka vefsíðum í Joomlavef. Hver vefur getur innihaldið einn eða fleiri valseðla sem hægt er að staðsetja hvar sem er á viðkomandi sniðmáti, þ.e. eins og sniðmátið leyfir. Hver valseðill getur innihaldið ótilgreindan fjölda krækja. Valseðlum er stýrt í Menu Manager (Menus > Menu Manager) sem einnig veitir aðgang umsýsluhluta hvers valseðils fyrir sig.

Nánar má lesa um valseðla í 11 blaðsíðna pdf skjali sem hægt er að sækja með því að smella hér.

Google Analytics og Joomla 1.5
Eitt mikilvægasta verkefni vefstjóra auk almennrar umsýslu og efnisvinnslu á vef er að fylgjast með umferð og virkni vefsins. Ég mæli eindregið með Google Analytics til slíkra verka. Þjónustan er ekki aðeins ein sú öflugasta sinnar tegundar heldur ókeypis. Hér ætla ég að sýna einfalda leið til þess að tengja Google Analytics þjónustuna við Joomla 1.5 vef.

Áður en Google Analytics er tengt við Joomlavef verður að vera til staðar aðgangur að Analytics þjónustunni. Allir sem nota Gmail eða aðra þjónustu í boði Google sem krefst innskráningar hafa þegar aðgang að Analytics. Þeir sem ekki hafa þegar skráð sig fyrir Google þjónustu verða að byrja á því að sækja um aðgang. Það má gera með því að heimsækja Google Analytics vefinn og smella á Sign up Now krækjuna fyrir neðan innskráningarhnappinn. Að því loknu er smellt á Access Analytics hnappinn.

Nú er komið að því að skrá upplýsingar um vefinn sem ætlunin er að fylgjast með í gegnum Google Analytics. Til þess er smellt á [Sign Up]hnappinn í Sign up for Google Analytics glugganum neðst í vinstra horni. Athugaðu að þessi gluggi birtist einungis notendum sem engan vef hafa skráð.

Fyrir hvern vef sem skráður er í Google Analytics (þeir geta verið fleiri en einn) þarf að gefa upp vefslóðina, nafn á reikninginn (til að aukenna ólíka vefi), land og tímabelti (kemur yfirleitt sjálfkrafa þegar land er valið). Smelltu á [Continue] hnappinn til að halda áfram.

Næst er komið að því að skrá upplýsingar um tengilið. Hér þarf að gefa upp nafn, símanúmer og land. Smelltu á [Continue] hnappinn til að halda áfram og samþykkja notkunarskilmála (e. Google Analytics Terms of Service).

Þegar notkunarskilmálarnir hafa verið samþykktir er smellt á [Create New Account] hnappinn til að halda áfram.

Þá er uppsetningu á Google Analytics fyrir viðkomandi vef lokið. Nú er einungis eftir að tengja Analytics vefmælinguna og vefinn saman þannig að Analytics geti lesið upplýsingar um heimsóknir á vefinn. Það er hægt að gera á tvennskonar máta. Annað hvort með því að afrita kóðann sem Analytics býr til (sjá myndina hér að ofan) í kóðann fyrir sniðmát vefsins eða setja upp í Joomla sérstaka Joomla viðbót (e. extension). Til þess þarf einungis auðkennikóða (á sniðinu UA-XXXXXXX-X) vefsins, sem finna má í þriðju síðustu línu kóðans hér að ofan (ég skyggi hann viljandi). Hér verður síðari leiðin farin þannig að það er um að gera að skrá þennan kóða hjá sér.

Google Analytics tengt við Joomla 1.5

Viðbótin sem ætlunin er að nota til að tengja saman Google Analytics og Joomla 1.5 nefnist Bigshot Google Analytics og hefur fengið ágætis viðtökur á Joomla.org vefnum. Það er yfirleitt góð regla að setja einungis upp viðbætur (e. extensions) sem hljóta góðar viðtökur notenda. Einn besti mælikvarðinn á það er stjörnugjöfin (ekki bara fjöldi stjarna heldur fjöldi einkunna) og athugasemdir notenda.

Fyrsta skrefið er að sækja viðbótina og setja hana upp í Joomla. Hér er bein slóð að vefnum sem hefur að geyma viðbótina. Skrunaðu örlítið niður og þá sérðu Download hnapp. Smelltu á hann til að sækja viðbótina.

Að því loknu er næsta skrefið að setja viðbótina upp í Joomla og gefa upp auðkennikóðann. Viðbótin er sett upp á hefðbundinn hátt með því að velja Extensions >Install/Uninstall.

Þar er smellt Browse hnappinn til að finna skránna sem var sótt og því næst á [Upload File & Install] hnappinn til að flytja hana yfir í Joomla. Að því verki loknu er komið að því að skrá Analytics auðkennikóðann.

Þar sem Bigshot Google Analytics viðbótin er svokallað “plugin” verður að velja Extensions > Plugin Manager til þess að sýsla með hana. Þegar það hefur verið gert birtist væntanlega langur listi af viðbótum. Finndu System-BIGSHOT Google Analytics viðbótina og smelltu á nafnið í listanum til að skrá inn auðkennikóðann. Athugaðu að hugsanlega finnst viðbótin ekki í fyrstu skjáfyllinni.

Til þess að ljúka við uppsetningu á BIGSHOT Google Analytics er viðótin virkjuð með því að haka við Yes reitinn hægra meginn við Enabled og auðkennikóðinn skráður í Web Property ID reitinn. Svo er bara að vista breytingarnar.

Til þess að ganga úr skugga um að uppsetning hafi heppnast er ráðlagt að skrá sig inn á Google Analytics vefinn. Athugaðu að það getur tekið allt að 24 stundir fyrir Google Analytics að virka eftir að uppsetningu er lokið. Kerfið gefur þó skilaboð þegar gagnasöfnun er hafin.

Smellt er á View report krækjuna til að fylgjast með umferð og virkni viðkomandi vefjar.

Heimild: sfjalar.net