3f.is » Atburðir 2006

Rachel Ager í heimsókn hjá 3f
Dagana 23 til 26 október 2006 var stödd hér á landi Rachel Ager í  boði 3f og Félags Leikskólakennara. Rachel hélt tvö námskeið fyrir  leikskólakennara á meðan á dvöl hennar stóð og kynnti sér nokkra  leikskóla hér á landi. Það voru Fjóla Þorvaldsdóttir sérkennsluráðgjafi í  Kópavogi og Hanna Dóra Leifsdóttir sérkennslustjóri í Garðabæ sem höfðu  frumkvæði að komu hennar hingað til lands.

Hér verður stiklað á stóru um það helsta sem fram kom á námskeiðum hennar.

Fyrri hluti námskeiðsins notaði Rachel til þess að segja frá  þróunarverkefni sem hún verkstýrði og unnið var í hennar skólaumdæmi,  Northamptonshire. Verkefnið fólst í því að innleiða tölvu- og  upplýsingatækni í daglegt starf leikskólanna.

Markmið

Markmið þróunarverkefnisins var að taka inn í alla þá þætti í samfélagi  og daglegu lífi þar sem tækni kemur við sögu og setja inn í skólanámskrá  leikskólanna. Með því móti væri hægt að leyfa börnum á leikskólaaldri  að upplifa og taka þátt í því tæknisamfélagi sem við lifum  í.

Í Bretlandi eins og hér á landi hefur fólk verið mjög upptekið af  tölvunni sjálfri en gleymt að það er tækni af margvíslegum toga allt um  kring í daglegu lífi fólks. Veglegur styrkur var fenginn til framkvæmdar  þróunarverkefnisins, sem stóð yfir frá árinu 2001 til 2003.

Rachel Ager kom inn á þær breytingar sem orðið hafa síðustu ár og  hversu mikilvægt það er fyrir leikskólann að þróast með.  Þjóðfélög eru  að þróast úr minningarsamfélagi yfir í þekkingarsamfélag þar sem  lausnarleitarnám væri einn mikilvægasti hlekkurinn í skólagöngu barna.  Hún sagði að vel skipulagður leikur væri lykillinn að námi í leikskólum  og mikilvægt er að kynna upplýsingatækni fyrir börnunum á þann hátt að  hún hefði tilgang.  Síðan kom hún með margvísleg dæmi um það hvernig  leikskólakennarar skipulegðu leik barnanna með því að samflétta leik- og  upplýsingatækni saman með frábærum árangri.

Að lokinni umfjöllun um þróunarverkefnið ræddi Rachel  um mikilvægi hlutverkaleiksins í leikskólastarfinu og hvernig nota má  hann sem leið til þess að kynna fyrir börnunum tölvu- og  upplýsingatækni. Hér má sjá íslenska þýðingu á skyggnum hennar:  Hlutverkaleikur

Þá fjallaði hún um notkun tölva í leikskólum. Hún lagði m.a. mikla  áherslu á mikilvægi þess að kennarar vandi til verka þegar kemur að vali  á forritum. Hér má sjá íslenska þýðingu á skyggnum hennar:  Notkun tolva

Leikföng sem hægt er að forrita voru einnig umfjöllunarefni Rachel.  Hún kynnti fyrir kennurum nokkuð af nýjum leikföngum, en nýlega fór  Skólavörubúðin að selja slík leikföng. Hér má sjá íslenska þýðingu á  skyggnum hennar:  Forritanleg leikfong

Að lokum fjallaði Rachel Ager um stafræna ljósmyndun. Rachel leggur  mikla áherslu á að farið sé að reglum hvað varðar birtingu stafrænna  mynda. Hún kom einnig inn á með hvaða hætti hægt er að leyfa börnunum að  kynnast þessari tækni. Hún sagði að við ættum óhikað að leyfa börnunum  að leika sér með myndavélarnar. Kenna verður þeim umgengni við vélarnar,  en hún vissi ekki til þess að börn færu verr með myndavélar en  fullorðnir.

Hér má sjá íslenska þýðingu á skyggnum hennar:  Stafrænar myndavélar

Hér er slóð á tæknibúnað sem mátti sjá notaðan í myndskýringum Rachel Ager,

http://www.compuvisor.com/digbludigmov1.html

Hér er slóð á tölvuforrit, Tizzy's First Tools sem Rachel mælti sérstaklega með til þess að nota í leikskólum  http://www.stream2school.com/tizzy-s-first-tools.html

Á meðan á heimsókninni stóð fór Rachel í heimsókn í leikskólana  Furugrund og Hvarf í Kópavogi. Leikskólann Hamraborg, þar sem hún fékk  að kynnast vísindum með börnum. Einnig var farið hinn “Gullna hring” og í  Bláa lónið.

Sjá má myndir frá heimsókn hennar hér.

http://app.tabblo.com/studio/stories/view/125816/

Ráðstefna 3f – Samræða allra skólastiga
Á ráðstefnunni - Það er leikur að læra - Samræða allra skólastiga  29.-30.sept. 2006 stóð 3F - félag um upplýsingatækni og menntun fyrir  eftirfarandi tveimur málstofum:

Annarri stýrði Sólveig Jakobsdóttir og bar hún heitið: Út fyrir ramma  ráðstefnunnar - Helstu málefni og uppbygging fagsamfélags á sviði UT en  hinni stýrði Salvör Gissurardóttir með þátttöku Sigurðar Fjalars  Jónssonar og Elínar Jónu Traustadóttur og fjallaði sú málstofa um Opinn  hugbúnað í skólastarfi. Við ákváðum í framhaldi af þessum málstofum að  bjóða áhugafólki að prófa Moodle en það kerfi hefur verið sett upp hér við KHÍ og halda umræðum þar áfram um mikilvæg málefni sem brenna á fólki í UT-geiranum.